Beint í efni
Maestro
← Fréttir og tækifæri

Fréttir ·

NESU – háskólalífið nær út fyrir landsteinana

NESU eru samtök viðskiptafræðinema á Norðurlöndunum og í Eistlandi sem bjóða upp á ferðalög, ráðstefnur og skemmtilega viðburði. Kynntu þér starfsemi NESU og tækifærin til að kynnast nemendum frá öðrum löndum!

Hefur þig einhvern tímann langað að kynnast háskólanemum frá öðrum löndum, ferðast og upplifa aðeins öðruvísi félagslíf? Þá gæti NESU verið eitthvað fyrir þig.

NESU (Nordiska Ekonomie Studerandes Union) eru samtök viðskiptafræðinema á Norðurlöndunum og í Eistlandi sem hafa það að markmiði að efla samstarf og tengsl milli nemenda. Samtökin voru stofnuð á sjötta áratug síðustu aldar og hafa síðan þá staðið fyrir ýmsum viðburðum þar sem nemendur koma saman, kynnast atvinnulífinu og ekki síst hver öðrum.

NESU er rekið án hagnaðarsjónarmiða, ekkert félagsgjald er innheimt og öllum viðskiptafræðinemum er velkomið að taka þátt.

En hvað gerir NESU?

Starfsemi NESU snýst að miklu leyti um að leiða saman nemendur frá ólíkum löndum. Á hverju ári eru haldnir viðburðir þar sem fræðsla, ferðalög og félagslíf fara saman.

Einn þeirra er NESU Excursion, fimm daga ferð þar sem um 60 viðskiptafræðinemar hittast og verja nokkrum dögum saman í nýju landi. Dagskráin er fjölbreytt og gefst þátttakendum tækifæri til að skoða sig um, kynnast menningu landsins og eignast nýja vini. Meðal áfangastaða undanfarinna ára eru Bergen í Noregi og Edinborg í Skotlandi.

Í síðustu NESU Excursion, sem haldin var í Edinborg, tóku þrír íslenskir meistaranemar úr Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands þátt. Það skemmtilega er að ekkert þeirra hafði heyrt um NESU áður. Í miðri prófatíð síðasta vor barst þeim tölvupóstur á HÍ-netföngin þeirra þar sem ferðin var kynnt. Þau ákváðu að slá til, skráðu sig frekar spontant og héldu svo til Skotlands án þess að vita almennilega út í hvað þau væru að fara.

Þau þurftu þó ekki að hafa miklar áhyggjur af því, því strax við komuna var tekið ótrúlega vel á móti þeim. Þrátt fyrir að vera alveg ný í NESU voru þau fljótt orðin hluti af hópnum og stemningunni sem fylgir þessu skemmtilega samfélagi. Á örfáum dögum höfðu þau kynnst fólki frá ýmsum löndum, upplifað nýjar hefðir og eignast vini sem þau hefðu annars líklega aldrei hitt. Það er kannski einmitt það besta við NESU, hversu auðvelt það er að mæta sem nýliði og finna sig strax meðal hópsins.

Annar stór viðburður er NESU Conference, sjö daga ráðstefna sem haldin er tvisvar á ári. Þar koma saman um 60 nemendur og vinna meðal annars verkefni í samstarfi við fyrirtæki, sitja fyrirlestra og fá innsýn í atvinnulífið. Á kvöldin tekur svo við félagsdagskrá og vikunni lýkur með hátíðarkvöldverði.

Svo eru það auðvitað sitz-kvöldin, sem eru stór hluti af NESU-menningunni. Sitz er nokkurs konar söng- og matarveisla með ákveðnum hefðum, reglum og yfirleitt ansi mikilli stemningu. Mætti svo sem líkja þeim við brekkusönginn góða, en þau sem hafa tekið þátt vita að þetta er upplifun út af fyrir sig!

NESU á Íslandi

Þótt NESU eigi sér langa sögu hefur starfsemin verið misöflug eftir löndum. Alþjóðlegt samstarf dróst töluvert saman í kjölfar heimsfaraldursins og undanfarin ár hefur starfsemin verið hvað öflugust í Finnlandi og Eistlandi.

Nú er hins vegar unnið að því að efla samstarfið á ný og fá fleiri lönd til að taka virkan þátt, þar á meðal Ísland.

Fyrir íslenska viðskiptafræðinema er þetta skemmtileg leið til að kynnast fólki utan Háskóla Íslands og jafnvel mynda tengsl sem nýtast síðar í námi eða starfi. Það er líka einfaldlega gaman að komast í ferðalag með öðrum nemendum og upplifa háskólalíf í öðrum löndum.

Reynsla íslensku nemendanna í Edinborg sýnir líka að það þarf ekki mikið til að verða hluti af NESU. Stundum þarf ekki meira en að opna tölvupóst, taka smá áhættu og segja já við einhverju nýju!

Hvernig get ég tekið þátt?

Ekki þarf að vera í stjórn nemendafélags eða hafa einhverja sérstaka reynslu til að taka þátt í NESU. Viðburðir samtakanna eru opnir öllum viðskiptafræðinemum og nýir þátttakendur eru alltaf velkomnir.

Á heimasíðu NESU má finna upplýsingar um samtökin og starfsemina. Einnig er hægt að fylgjast með @nesu_iceland á Instagram, en stefnt er að því að efla þá síðu haustið 2026.

Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við forseta NESU í gegnum president@nesu.net. Forsetinn sér meðal annars um að efla samstarf milli aðildarlandanna.

Við hjá Maestro hvetjum alla sem hafa áhuga á að kynnast nýju fólki, ferðast og prófa eitthvað nýtt til að kynna sér NESU og fylgjast með næstu viðburðum. Hver veit nema næsti tölvupóstur frá NESU verði upphafið að óvæntu ævintýri?

Það er nefnilega ýmislegt hægt að gera á háskólaárunum annað en að sitja á bókasafninu!

https://nesu.net/