Potentialpark er alþjóðlegt rannsóknar- og ráðgjafarfyrirtæki í Stokkhólmi sem hefur í yfir 20 ár rannsakað væntingar og upplifun háskólanema og nýútskrifaðra einstaklinga af atvinnumarkaðnum. Við vinnum með leiðandi atvinnurekendum um allan heim og hjálpum þeim að skilja betur hvað ungt fólk leitar að í framtíðarstarfi og hvernig megi bæta ráðningarferli. Þín skoðun getur haft áhrif!
Á hverju ári stendur Potentialpark fyrir alþjóðlegri könnun þar sem nemendur fá tækifæri til að segja sína skoðun á atvinnuleit, ráðningarferlum, gervigreind og væntingum til framtíðarvinnustaðarins. Niðurstöðurnar eru kynntar fyrir leiðandi fyrirtækjum og nýttar til að bæta hvernig þau nálgast og ráða ungt fólk. Með þátttöku getur þú tryggt að sjónarmið íslenskra nemenda heyrist á alþjóðavísu. Meira en bara rannsókn Potentialpark býður nemendum einnig upp á gjaldfrjáls tækifæri til að undirbúa sig fyrir atvinnulífið, meðal annars: ● Alþjóðlega viðburði og vefnámskeið með sérfræðingum og fulltrúum leiðandi fyrirtækja. ● Fræðslu um atvinnuleit, ferilskrár, atvinnuviðtöl og ráðningarferli. ● Innsýn í hvernig gervigreind (AI) er að breyta atvinnuleit og framtíð vinnumarkaðarins. ● Tækifæri til að kynnast alþjóðlegum fyrirtækjum og atvinnumöguleikum. ● Möguleika á að vinna gjafakort og ferð til Stokkhólms! Taktu þátt í könnuninni! Láttu þína rödd heyrast og taktu þátt í að móta framtíð vinnumarkaðarins!
Hlekkur að könnuninni: https://survey.alchemer.com/s3/8992003/e9ac8dfa0345
Viltu fá nýjar hugmyndir um hvernig þú getur nýtt gervigreind í atvinnuleitinni? Þá er tilvalið að taka þátt í vefviðburði Potentialpark fyrir nemendur, „How to Become an AI Multiplier in Modern Hiring“.
ATH viðburðurinn er 4. nóvember!
Hlekkur fyrir áhugasöm: https://www.potentialpark.com/student-webinar-how-to-become-an-ai-multiplier-in-modern-hiring