Um viðburðinn
Vísó til Indó
Indó er íslenskt fjártæknifyrirtæki sem hefur það að markmiði að gera bankastarfsemi einfaldari, gegnsærri og aðgengilegri með því að ögra hinu hefðbundna bankakerfi!
Viltu vita hvað þarf til að byggja upp nýja tegund banka? Komdu með okkur í heimsókn til Indó þar sem við skoðum vegferð fyrirtækisins, kynnum okkur hvernig nýsköpun og tækni endurmóta fjármálaþjónustu og heyrum um tækifærin og áskoranirnar sem fylgja því að starfa í fjármálageiranum.
Hvort sem þú hefur áhuga á fjármálum, frumkvöðlastarfsemi eða tækni þá er þetta þitt tækifæri til að öðlast innsýn í raunveruleikann, hitta fagfólk í bransanum og spyrja allra þeirra spurninga sem þú hefur verið forvitin um!
Fleiri nemendafélög verða með okkur, svo þetta er tilvalið tækifæri til að kynnast fólki úr öðrum deildum!