Skráning opin

PUB GOLF 2026

9 holu pöbbgolf niður í bæ með liðum, skorkortum, mismunandi drykkjum og matarstoppi á leiðinni.

Hvenær
26. september 2026, kl. 17:00
Hvar
Miðbær Reykjavíkur — mæting á 2Guys, Laugavegi 105
Pláss
20 sæti, síðan biðlisti
Verð
Maestro-félagar: 0 kr. · Aðrir: 1,000 kr.
Viðburðarmynd fyrir PUB GOLF 2026

Um viðburðinn

PUB GOLF 2026

Laugardaginn 26. september verður MAESTRO PUB GOLF 2026 haldið niður í miðbæ.

Keppt verður í liðum þar sem hver staður er ein hola og hver hola hefur sinn drykk. Liðið deilir drykknum á hverjum stað, heldur utan um skorið á skorkorti og reynir að klára brautina á sem lægstu skori.

Við byrjum á 2Guys, tökum matarstopp á Bastard og endum kvöldið á Loft. Á leiðinni verða fjölbreyttir drykkir, meðal annars Guinness, prosecco, IPA, vín og Aperol Spritz.

Það er að sjálfsögðu hægt að taka þátt án áfengis og óáfengir valkostir gilda alveg eins.

Golfklæðnaður er velkominn fyrir þá sem vilja taka þemað alla leið.

🏆 Verðlaun verða fyrir sigurliðið.

Ath. Þátttakendur greiða sjálfir fyrir drykki og mat á leiðinni. Skráning er nauðsynleg og þátttakendum verður raðað í lið fyrir viðburðinn.

Hverjir eru skráðir?

Skráningarlisti

Aðeins nöfn skráðra birtast opinberlega.

Sæki lista…