Um viðburðinn
Samtal við atvinnulífið
*Viðburðurinn er ókeypis en skráning er nauðsynleg.
Hvað fær okkur til að kaupa – og hvað gerist á bak við tjöldin þegar stærstu verslunardagar ársins nálgast?
Frá 11.11 og Black Friday til jóla, móta tilboð, auglýsingar og félagslegar væntingar kaupákvarðanir okkar. En hvaða áhrif hefur þetta tímabil á fyrirtæki, fólk og samfélagið?
MAESTRO, félag viðskipta- og hagfræðinema, býður til samtals við sérfræðinga með ólíkan bakgrunn um neytendahegðun, markaðssetningu, rekstur og samfélagsleg áhrif neyslu. Við skoðum hvernig fyrirtæki undirbúa sig fyrir álagið, hvað mótar hegðun okkar sem neytenda og hvernig viðskiptalegir hagsmunir og samfélagsleg ábyrgð fara saman.
Nemendur alls félagsvísindasviðs eru velkomnir að tengja viðfangsefni námsins við reynslu úr atvinnulífinu og heyra ólík sjónarhorn á tímabil sem snertir okkur öll. Komdu með þínar spurningar og taktu þátt í samtalinu!
*Viðburðurinn er óskeypis en skráning nauðsynleg.
Boðið verður upp á léttar veitingar!
Nánari dagskrá verður auglýst síðar.